Erlent

Kínverjar hundfúlir yfir samskiptum Dana við Dalai Lama

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Dalai Lama kemur til Íslands á sunnudagskvöld.
Dalai Lama kemur til Íslands á sunnudagskvöld.
Fundur danska forsætisráðherrans með Dalai Lama skaðar vináttusamband Danmerkur og Kína. Þetta segir í tilkynningu frá kínverska utanríkisráðuneytinu í dag, en Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur hitti Dalai Lama bústað ráðherrans í gær.

Dalai Lama hefur verið í útlegð í Indlandi frá árinu 1959 vegna deilna sem eru sprottnar af baráttu hans fyrir sjálfstæði Tíbeta gagnvart Kína. Hann hefur verið á ferð um Evrópu að undanförnu og kemur til Íslands á sunnudagskvöld. Ekki er vitað til þess að hann muni hitta ráðherra úr íslensku ríkisstjórninni, en hann mun funda með utanríkismálanefnd Alþingis eftir helgi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×