Erlent

Uppreisnarmenn í Darfur dæmdir til dauða

Kartúm, Khartoum, höfuðborg Súdans.
Kartúm, Khartoum, höfuðborg Súdans.
Súdanskur dómstóll dæmdi í morgun níu uppreisnarmenn í Darfúr-héraði til dauða fyrir þátttöku í árásum á Kartúm, höfuðborg Súdans, í fyrra. Þá hafa 91 uppreisnarmaður hlotið dauðadóm og samkvæmt lögum í Súdan verða mennirnir allir hengdir.

Uppreisnarmennirnir réðust á Kartúm í maí í fyrra og sóttu langt inn í borgina. Þeir voru í aðeins nokkurra kílómetra fjarlægð frá forsetahöllinni og höfuðstöðvum súdanska hersins þegar sókn þeirra var stöðvuð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×