Stjórnin í Pakistan spyrnir við fótum 2. maí 2009 05:00 Vígbúnaður gegn talibönum Pakistanskir hermenn á leið til vígstöðva í Buner-héraði.fréttablaðið/AP
Pakistansher hefur í vikunni reynt að hrekja sveitir talibana frá Buner-héraði, sem er í aðeins hundrað kílómetra fjarlægð frá Islamabad, höfuðborg landsins. Í síðustu viku lagði um 500 manna lið talibana undir sig helstu bæi í héraðinu. Stjórnvöld brugðust hart við og sendu herinn á vettvang. Asif Ali Zardari forseti hvetur þjóðina til að standa einhuga að baki aðgerðum gegn talibönum. Bandaríkjastjórn gagnrýndi Zardari harðlega þegar hann ákvað að semja við talibana um að íslömsk sjaría-lög verði tekin upp í Swat-dalnum og Malakand-héraði, en í staðinn lofuðu talibanar að hætta uppreisn sinni gegn stjórninni, sem kostað hefur fjölmörg mannslíf undanfarin tvö ár. Í ræðu á miðvikudag sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti að Pakistanar væru nú að átta sig á því að áherslan á Indland sem höfuðóvin Pakistans hafi kannski verið misráðin. Nú sé að koma í ljós að hættan innan frá sé mun meiri. Pakistanski herinn sé farinn að líta mun alvarlegri augum á hættuna sem stafar af herskáum öfgamönnum. „Ég hef miklar áhyggjur af ástandinu í Pakistan, ekki vegna þess að ég haldi að árás sé yfirvofandi og talibanarnir muni taka völdin,“ sagði Obama, „heldur vegna þess að borgaralega ríkisstjórnin þar er mjög brothætt sem stendur.“ Talibanar njóta mikils stuðnings meðal pastú-þjóðflokksins, sem býr beggja megin landamæranna og hefur í gegnum aldirnar iðulega neitað að lúta ríkisvaldinu, bæði í Afganistan og Pakistan. Þessi víðtæki stuðningur meðal pastúa hefur gert talibönum kleift að hreiðra um sig Pakistansmegin, og skipuleggja þaðan bæði fjáröflun, vígvæðingu og árásir yfir landamærin á erlenda herliðið í Afganistan. - gb
Mest lesið Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Erlent Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Innlent Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Erlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Innlent Fleiri fréttir Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Sjá meira