Heimsbyggðin standi saman gegn kreppu 2. apríl 2009 04:00 Barack Obama Bandaríkjaforseti og Michelle eiginkona hans heilsuðu Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, og Sarah konu hans á tröppunum framan við Downingstræti 10 í gær. Nordicphotos/afp
Barack Obama Bandaríkjaforseti hvatti í gær mestu efnahagsveldi heims til að snúa bökum saman til að mæta heimskreppunni sem á er skollin. „Við getum ekki mætt þessari áskorun nema með því að standa saman,“ sagði forsetinn eftir komu sína til Lundúna, þar sem leiðtogafundur svonefnds G20-hóps mestu efnahagsvelda heims hefst í dag. Obama sagði ennfremur að fullyrðingar um að Bandaríkjamenn stæðu í deilum við aðrar þjóðir heims um þörfina á að dæla meiru af opinberu fé út í nafni kreppuvarna út í efnahagslífið væru „ýktar úr hófi“. „Ég er algerlega sannfærður um að þessi fundur mun endurspegla gríðarlegan einhug um þörfina á samræmdum aðgerðum til að leysa þessi vandamál,“ sagði forsetinn á sameiginlegum blaðamannafundi með breska forsætisráðherranum Gordon Brown. Obama varaði einnig eindregið við því að þjóðir heims féllu í þá gryfju að grípa til verndarstefnu og viðlíka ráðstafana sem gerðu heimskreppuna á fjórða áratugnum dýpri og lengri en annars hefði orðið. „Það voru mistök sem við höfum ekki efni á að endurtaka.“ Seinna um daginn átti Obama tvíhliða fundi með Dmítrí Medvedev Rússlandsforseta og Hu Jintao Kínaforseta, auk þess að þiggja heimboð hjá Elísabetu II. Englandsdrottningu. Eftir fundinn með Medvedev lýstu báðir forsetarnir því yfir að þeir vildu að nýtt samkomulag um takmarkanir á kjarnorkuvígvæðingu Rússlands og Bandaríkjanna yrði tilbúið þegar núgildandi samningur þar að lútandi rennur út í desember næstkomandi. Sá samningur, kallaður START, er frá árinu 1991, árinu sem Sovétríkin voru leyst upp og Rússland erfði vopnabúr þeirra. Robert Gibbs, talsmaður Hvíta hússins, sagði að ekki hefði enn sem komið er verið samið um nýtt þak á fjölda kjarnaodda. Í núgildandi samningi eru þessi tvö stærstu kjarnorkuvopnabúr heims takmörkuð við á bilinu 1.700 til 2.200 kjarnaodda. Fjöldamótmæli og öryggisráðstafanir vegna G20-fundarins voru mjög áberandi í bresku höfuðborginni í gær. audunn@frettabladid.is
Mest lesið „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Eigendur Santé ákærðir fyrir vínsölu og peningaþvætti Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Innlent Óraði ekki fyrir að ákvæðinu yrði beitt til að sleppa morðingja Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent „Ég get ekki orða bundist“ Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Fleiri fréttir Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Sjá meira