Erlent

Annað barn hugsanlega á lífi eftir flugslys

Annað barn hefur fundist á lífi eftir að farþegaþota hrapaði nálægt Kómoro-eyjum í fyrrinótt.

Það er fréttastofan AFP sem heldur þessu fram en þegar hafa björgunarmenn bjargað fjórtán ára stúlku úr sjónum.

Í upphafi bárust fregnir af því að fimm ára gamalt barn hefði fundist á lífi eftir að flugvélin hrapaði, það reyndist þó ekki rétt.

Talið er að vélin, sem var að koma frá Yemen, hafi hrapað vegna illviðris. Vélin átti skammt eftir þegar hún steyptist í Indlandshafið.

Björgunarmenn eru að störfum en vonir um að finna farþega á lífi fara þverrandi með hverri klukkustundinni.

Frönsk yfirvöld hafa gagnrýnt aðbúnað flugvélarinnar en hún var á gátlista þar í landi fyrir tveimur árum þegar bilun fannst í henni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×