Erlent

Mynd á líkklæðinu sögð fölsun da Vinci

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Bandarískur listfræðingur þykist hafa sýnt fram á að líkklæðið frá Tórínó sé fölsun Leonardos da Vinci.

Lengi hefur það verið hald manna að á líkklæðinu megi greina andlitsmynd Krists en klæðið á að hafa verið notað til að hylja líkama hans eftir krossfestinguna. Nýlega sýndu breskir og bandarískir vísindamenn reyndar fram á að klæðið gæti alls ekki verið eldra en frá 13. öld svo þetta er þegar orðin vafasöm sagnfræði en nú hefur listamaðurinn og listfræðingurinn Lillian Schwartz við School of Visual Arts í New York slegið því fram að andlitsmyndin á klæðinu sé fölsun ein.

Og hver er sökudólgurinn? Enginn annar en Leonardo da Vinci. Schwartz heldur því fram að andlitsmyndin sé einfaldlega af da Vinci sjálfum og hafi hann beitt fyrstu ljósmyndatækni heimsins, hinni ítalskættuðu camera obscura, til að kalla daufa mynd af ásjónu sinni fram á klæðinu.

Schwartz virðist vera það mikið metnaðarmál að fletta ofan af da Vinci en það var einmitt hún sem sýndi fram á það með aðstoð tölvuforrits árið 1980 að fyrirsætan á frægasta verki da Vincis, sjálfri Mónu Lísu, væri einnig hann sjálfur. Í heimildamynd sem sýnd var í Bretlandi í síðustu viku segir Schwartz að öll sú tækni sem til þurfti til að koma andliti da Vincis á líkklæðið hafi verið til á 15. öld og líkklæðið beri því mynd hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×