Erlent

Ný gegnumlýsingartæki sýna farþega nakta

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Starfsmaður samgönguöryggisstofnunar Bandaríkjanna prófar gripinn.
Starfsmaður samgönguöryggisstofnunar Bandaríkjanna prófar gripinn. MYND/CNN

Bandarísk samtök, sem berjast fyrir persónuvernd, hyggjast kvarta til heimavarnaráðuneytisins yfir gegnumlýsingartækjum á sex bandarískum flugvöllum sem sýna flugfarþegana beinlínis nakta þegar þeir ganga gegnum tækin. Allir hlutir, hvort sem er úr málmi eða öðrum efnum, sem farþegarnir bera á sér, koma í ljós við gegnumlýsinguna en persónuverndarsamtökunum þykir gengið mjög nærri friðhelgi einkalífsins. Enn er verið að prófa tækin og hafa engar reglugerðir verið settar um notkun þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×