NAACP vilja myndir af lögregluofbeldi Atli Steinn Guðmundsson skrifar 15. júlí 2009 08:10 Malasískir lögreglumenn þjarma að mótmælanda í Kuala Lumpur.
Réttindasamtök þeldökkra í Bandaríkjunum (NAACP) hafa opnað fyrir möguleika til að hlaða myndum af lögregluofbeldi inn á heimasíðu samtakanna. Þarna er um að ræða allsherjartilkynningakerfi um tilvik þar sem lögregla fer offari í starfi sínu og beitir óþarfa hörku eða ofbeldi. Nú býðst farsímanotendum hvort tveggja að færa myndir úr farsímum sínum inn á heimasíðuna og eins að senda SMS-skilaboð, eða bara hefðbundinn tölvupóst, til að koma upplýsingum á framfæri. Benjamin Jealous, framkvæmdastjóri samtakanna, segir að langflestir lögreglumenn séu til hreinnar fyrirmyndar en hins vegar sé það algengt að þeir sem brjóti á mannréttindum annarra við störf sín séu of sjaldan látnir sæta ábyrgð. Slíkt geti haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir öryggi og traust almennings. Samtökin opnuðu formlega fyrir þennan nýja möguleika á síðunni á ráðstefnu í New York á mánudaginn. Þau fagna 100 ára afmæli sínu um þessar mundir en stofndagurinn var 12. febrúar 1909. Skemmst er að minnast þess er lögregluþjónn í Oakland í Kaliforníu var ákærður fyrir morð eftir að farsímamyndskeið sýndi hann glöggt skjóta óvopnaðan mann til bana á nýársdag.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira