Leynileg áætlun um morðsveitir frá CIA 15. júlí 2009 00:45 CIA.
Frá árinu 2001 var bandaríska leyniþjónustan CIA með áætlun tilbúna um að ráða helstu leiðtoga hryðjuverkasamtakanna Al Kaída af dögum. Þeirri áætlun var aldrei hrint í framkvæmd, en hún var heldur ekki lögð á hilluna fyrr en í síðasta mánuði. Bandarísku dagblöðin Wall Street Journal og New York Times hafa skýrt frá þessu síðustu daga. New York Times segir vandræðagang hafa einkennt málið frá upphafi. Óljóst hafi verið hvernig ætti að standa að framkvæmdinni og sömuleiðis óljóst hverjir innan stjórnkerfisins mættu eða ættu að fá að vita af þessari áætlun, sem vitað var að yrði umdeild. Dick Cheney, fyrrverandi varaforseti, lagði frá upphafi áherslu á að þessu væri haldið leyndu fyrir Bandaríkjaþingi. Fljótlega eftir að Leon E. Panetta, nýr yfirmaður CIA, frétti af þessu tók hann ákvörðun um að hætt skyldi við öll áform af þessu tagi. Jafnframt skýrði hann leyniþjónustunefndum beggja deilda þingsins frá málinu. Strax á fyrstu vikunum eftir árásir hryðjuverkamanna á Bandaríkin þann 11. september árið 2001 kom upp sú hugmynd að gera þyrfti leyniþjónustunni kleift að taka Osama bin Laden og aðra helstu leiðtoga Al Kaída af lífi hvenær sem tækifæri gæfist. Útfærslan í framkvæmd reyndist þó heldur flókin. „Þetta hljómar vel í bíómyndum, en þegar að framkvæmdinni kemur þá er þetta ekki svo einfalt," hefur New York Times eftir ónefndum heimildarmanni, fyrrverandi leyniþjónustumanni: „Hvar eiga þeir að hafa bækistöðvar? Hvernig eiga þeir að líta út? Eiga þeir að sitja í höfuðstöðvunum og bíða tilbúnir til útkalls hvenær sem er sólarhringsins?" Lögfræðilega hliðin olli yfirmönnum leyniþjónustunnar ekki síður heilabrotum en útfærslu-atriðin, því þótt ýmsir lögfræðingar á vegum Bandaríkjastjórnar hafi reyndar komist að þeirri niðurstöðu að þetta ætti ekkert að brjóta í bága við alþjóðasamninga þá voru þær vangaveltur lögfræðinganna umdeildar. Ísraelsk stjórnvöld hafa árum saman stundað það að senda fámennar morðsveitir til að taka andstæðinga sína af lífi hvar sem til þeirra næst án dóms og laga. Þau hafa til þessa látið sér fátt um finnast, þótt sú iðja hafi sætt gagnrýni. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Erlent „Varð að martröð“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Erlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Erlent Fleiri fréttir Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Einn í lífshættu eftir að bíl var ekið inn í þvögu Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Farage sextánfaldar sætin á sveitarstjórnarstiginu Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Sjá meira