Erlent

Fylgi Verkamannaflokksins í sögulegu lágmarki

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Brown á ekki sjö dagana sæla.
Brown á ekki sjö dagana sæla.

Fylgi breska Verkamannaflokksins hefur aldrei verið minna en nú. Í skoðanakönnun The Sun í gærkvöldi mældist fylgi við flokkinn aðeins 22 prósent. Blaðið segir könnunina vera áfall fyrir Gordon Brown forsætisráðherra en Íhaldsflokkurinn mældist með 41 prósents fylgi. Verkamannaflokkurinn hefur nú 350 þingsæti en hætt er við að þeim fækki verulega í næstu kosningum og hafa blaðamenn The Sun uppnefnt flokkinn og kalla nú Lowbour í stað Labour.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×