Sérfræðingar vonlitlir um vopnahlé á Gaza 10. janúar 2009 12:12 Mikið mannfall hefur orðið í átökum síðustu daga á Gaza.
Þrátt fyrir að Hamas-samtökin og Ísraelar hafi sent fulltrúa til Egyptalands til viðræðna um vopnahlé á Gaza dvína vonir um að nokkuð verði af samkomulagi um slíkt. Sprengjum rigndi yfir Gaza í nótt fimmtánda daginn í röð og flugskeytum var áfram skotið á Ísrael. Egyptar og Frakkar hafa reynt að miðla málum og fá deilendur að samningaborðinu til að semja um vopnahlé. Það hefur tekist að því er varðar að fá fylkingarnar til viðræðna. Fulltrúar Hamas og Ísraela eru í Kaíró í Egyptalandi þar sem fundað er. Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna og leiðtogi Fatah-hreyfingarinnar, er einnig væntanlegur til Kaíró til viðræðna við Hosni Mubarak Egyptalandsforseta um ástandið á Gaza. Fréttaskýrendur og sérfræðingar eru þó ekki vongóðir um að samið verði um vopnahlé. Sem dæmi hafi Egyptar hafnað því að leyfa alþjóðlegum eftirlitsmönnum að starfa á landamærum Egyptalands að Gaza en þeim yrði falið að koma í veg fyrir vopnasmygl til herskárra á Gaza. Egyptar munu þess í stað vilja tækniaðstoð fyrir eigin eftirlitsmenn á landamærunum. Ísraelar segja þetta óásættanlegt. Egyptum hafi hingað til ekki tekist að koma í veg fyrir að Hamas-liðar á Gaza yrðu sér úti um vopn. Þar fyrir utan hafa bæði Ísraelar og Hamas-liðar hafnað ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um tafarlaust vopnahlé og það bendi ekki til að þeir vilji semja. Í nótt héldu Ísraelar áfram að varpa sprengjum á Gaza og flugskeytum var skotið frá svæðinu yfir landamærin á skotmörk í Suður-Ísrael. Til skotbardaga mun einnig hafa komið milli ísraelskra hermanna og herskárra Palestínumanna á jörðu niðri. Ísraelsher mun þó ekki hafa sótt inn á þéttbýlustu svæðin á Gaza. Hlé verður þó á bardögum í þrjár klukkustundir í dag að sögn Ísraela þannig að Gazabúar geti orðið sér út um nauðsynjar.
Mest lesið „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Erlent Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Erlent Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Innlent Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Erlent Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Erlent Tilkynnt um alblóðugan mann á gangi í miðborginni Innlent Fleiri fréttir Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Sjá meira