J.D. Salinger stefnir rithöfundi fyrir brot á höfundarrétti Atli Steinn Guðmundsson skrifar 2. júní 2009 08:09 J.D. Salinger. MYND/Planetvideo.com.au
Höfundur skáldsögunnar Bjargvætturinn í grasinu hefur stefnt öðrum rithöfundi og útgáfufyrirtæki hans vegna bókar sem sá síðarnefndi skrifaði sem framhald sögunnar. „The Catcher in the Rye" eftir Jerome David Salinger, sem alla jafna er auðkenndur sem J.D. Salinger, er saga sem allmargir Íslendingar lásu og lesa enn fyrir enskutíma sína í framhaldsskólum landsins. Þarna er um að ræða eitt af tímamótaverkum bandarískrar skáldsagnagerðar á 20. öldinni en sagan af Holden Caulfield, brottrekstri hans úr skóla og ærlegu skemmtanalífi í nokkra daga þar á eftir var umdeild og um tíma bönnuð í Bandaríkjunum.„The Catcher in the Rye" eftir Jerome David Salinger,Flosi Ólafsson þýddi Bjargvættinn síðar yfir á íslensku og þótti byltingarkennt slangur og sérstakt orðfæri aðalsöguhetjunnar skila sér ágætlega í þeirri þýðingu. Nú hefur Salinger stefnt rithöfundi sem kallar sig J.D. California og hefur, án þess að spyrja kóng eða prest, sent frá sér framhald sögunnar sem hann kallar „Gegnum grasið - 60 árum síðar" eða „60 Years Later: Coming Through the Rye".Upprunalega skáldsagan kom út árið 1951 og á Salinger að sjálfsögðu höfundarréttinn að henni. Í stefnunni segir Salinger yngri höfundinn nota hugverk hans í ábatasömum tilgangi að honum fornspurðum og yfirleitt í algjöru heimildarleysi. Þetta sé hreint og klárt brot á hugverka- og auðkennarétti og fer Salinger fram á lögbann gegn útgáfunni sem fyrirhuguð er í haust.
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Fleiri fréttir Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Sjá meira