Erlent

ESB-ríki geta sett lög um hverjir eiga og reka lyfjabúðir

Evrópudómstóllinn hefur úrskurðað að ríkjum sambandsins sé heimilt að setja lög sem skilyrða hverjir megi eiga og reka lyfjabúðir. Dómurinn var kveðinn upp eftir að Þjóðverjar settu í lög að lyfjaverslanir mættu eingöngu vera í eigu lyfjafræðinga.Þessi niðurstaða veldur eigendum verslanakeðja með lyf miklum vonbrigðum, þar sem þeir höfu vonast til að geta fært út kvíarnar til ríkja sem hafa haft takmarkanir sem þessar í lögum.

Samtök lyfjafræðinga kærðu ákvörðun stjórnvalda í Saarlands-fylki sem heimiluðu hollenska fyrirtækinu Doc Morris að opna verslun í fylkinu árið 2006. En hollenska fyrirtækið er reyndar dótturfélag þýska lyfjarisans Celesio. Fylkisdómstóll dæmdi lyfjafræðingunum í vil og var þeim dómi áfrýjað til Evrópudómstólsins sem nú hefur staðfest að leyfilegt sé að setja þau skilyrði að einungis lyfjafræðingar megi eiga og reka lyfjaverslanir.

Dómurinn segir að vissulega feli úrskurðuinn í sér hindranir á félagafrelsi og frjálsu flæði fjármagns. Það sé hins vegar réttlætanlegt því skilyrðin tryggi að almenningur fái alltaf aðgang að áræðanlegum lyfjum sem uppfylli gæðakröfur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×