Fjarstýrð þyrla olli usla í indverska þinginu Atli Steinn Guðmundsson skrifar 30. apríl 2009 08:23 Indverska þinghússins er vel gætt. MYND/AP
Neyðarástandi var lýst yfir í indverska þinghúsinu í gær þegar óvenjulegur vágestur birtist þar fyrirvaralaust. Byggingin sem hýsir þing Indlands í Nýju-Delí er ákaflega fullkomin í öryggislegu tilliti og þingmannanna vel gætt enda telur neðri deild þess yfir 500 þingmenn og efri deildin 250. Þingið er umlukt háum þykkum steinveggjum og er hreinasta virki. Það varð því uppi fótur og fit meðal öryggisvarða þingsins í gær þegar tæplega hálfs metra langri fjarstýrðri þyrlu var flogið yfir veggina miklu og inn í forgarð þinghússins. Allt öryggiskerfi hússins fór í gang með tilheyrandi látum, verðir gripu til vopna sinna og bjuggu sig undir hin hinstu rök. Enginn reyndist þó í lífshættu að þessu sinni og lenti þyrlan í rólegheitum í garðinum. Stjórnandinn er ófundinn en talið er að þyrlan hafi komið frá Talkatora-leikvanginum sem er þarna í grenndinni. Allt flug er stranglega bannað í nágrenni þingsins og yfir því eftir hryðjuverkaárás árið 2001 sem Indverjar kenna Pakistönum um og varð 12 manns að bana. Menn hefðu þó sennilega mátt anda rólega í gær þar sem þingfundur stóð ekki yfir og húsið var nánast mannlaust.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Fleiri fréttir Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Sjá meira