Erlent

Fjölskyldur fórnarlamba Omagh árásarinnar fá skaðabætur

Frá sprengjuárásinni í Omagh árið 1998.
Frá sprengjuárásinni í Omagh árið 1998.
Fjórir meðlimir samtakann Real IRA voru í dag dæmdir til þess að greiða fjölskyldum fórnarlamba Omagh sprengjuárásarinnar árið 1998 skaðabætur. Tuttugu og níu létu lífið í árásinni, þar á meðal kona sem var ólétt af tvíburum. Yfir 200 manns særðust í árásinni en Real IRA er hluti af írska lýðveldishernum og sprengdu bílsprengju á markaði í Omagh í ágúst árið 1998.

Það er Reuters fréttastofan sem greinir frá í dag.

Ættingjar fórnarlambanna höfðuðu mál á hendur fimm mönnum en einn þeirra var hreinsaður af ásökunum. Dómsmálið hófst árið 2001 en einn mannanna, Michael McKevitt leiðtogi samtakanna var úrskurðaður ábyrgur fyrir árásinni. Liam Cmpbell, Colm Murphy og Seamus Daly voru einnig dæmdir sekir en Seamus McKenna var sýknaður.

Mennirnir þurfa að greiða fjölskyldum fórnarlambanna um 322 milljarða króan í skaðabætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×