Svínum slátrað í Egyptalandi 30. apríl 2009 04:15 Bændur koma í veg fyrir slátrun Bændur í Egyptalandi stöðvuðu fulltrúa stjórnvalda sem ætluðu að slátra öllum svínum í landinu.fréttablaðið/AP
Viðbrögðin við svínaflensu eru ekki á sama veg í öllum ríkjum heims. Í Egyptalandi tóku stjórnvöld þá ákvörðun að slátra skyldi öllum svínum í landinu, en þau eru samtals 300 þúsund. Bændur í Egyptalandi reyndust þó engan veginn sáttir við þessa ákvörðun og hafa reynt að hindra framkvæmd hennar eftir bestu getu. Asíuríki hafa hins vegar brugðist öðruvísi við. Þau telja sig hafa lært ýmislegt af tveimur faröldrum sem þar hafa geisað undanfarinn áratug. Annars vegar er þar átt við fuglaflensuna, hins vegar HABL-faraldurinn svonefnda, en sú skammstöfun stendur fyrir heilkenni alvarlegrar bráða-lungnabólgu. „Ef eitthvað gott hefur komið út úr HABL-faraldrinum og fuglaflensunni er það að við erum betur undirbúin í Kína og einnig annars staðar í heiminum,“ segir Hans Troedsson, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í Peking. „Það sem mestu skiptir er að almenningur skilji ástandið,“ segir hann. „Besta leiðin til þess er að veita upplýsingar. Það er lexían sem við lærðum í Víetnam og víðar.“ HABL-faraldurinn varð nærri 800 manns að bana árið 2003, en fuglaflensan hefur kostað samtals meira en 250 manns lífið undanfarin ár.- gb
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Sjá meira