Erlent

Alan Johnson tekur við af Jacqui Smith

Alan Johnson.
Alan Johnson.

Alan Johnson verður nýr innanríkisráðherra í bresku ríkisstjórninni og tekur hann við af Jacqui Smith sem sagði af sér á dögunum. Johnson gegndi áður embætti heilbrigðisráðherra. Þetta kemur fram á heimasíðu BBC en Gordon Brown forsætisráðherra hefur staðið í ströngu síðustu daga og hafa þrír ráðherrar sagt af sér embætti.

Nú síðast var það atvinnumálaráðherrann James Purnell, sem sagði af sér ráðherradómi í gærkvöldi um leið og hann hvatti forsætisráðherrann til þess að segja af sér. Alistair Darling fjármálaráðherra mun halda áfram sem slíkur og Jack Straw verður einnig áfram á stóli dómsmálaráðherra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×