Enski boltinn

Redknapp hefur áhuga á Beckham

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Beckham fer aftur til LA í sumar.
Beckham fer aftur til LA í sumar. Nordic Photos/getty Images

Harry Redknapp, stjóri Tottenham, hefur viðurkennt að hann hafi áhuga á því að fá David Beckham yfir á White Hart Lane. Sögur segja að Spurs sé að íhuga að reyna að fá Beckham að láni.

„Ég hef ekkert verið að hugsa um Beckham en það væri vanvirðing að segja að ég hefði ekki áhuga á að fá hann til okkar ef möguleikinn væri til staðar," sagði Redknapp.

„David Beckham er stórkostlegur leikmaður og þess utan mikil fyrirmynd og atvinnumaður fram í fungurgóma. Ef ég fengi tækifæri til þess að semja við hann þá myndi ég svo sannarlega skoða það alvarlega," sagði stjórinn lunkni.

„Hann á enn nóg eftir og hvernig hann skilar boltanum frá sér er einstakt."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×