Birtir leyniskjöl um illa meðferð á föngum Óli Tynes skrifar 17. apríl 2009 19:30
Barack Obama hefur látið birta leyniskjöl yfir illa meðferð á föngum sem heimiluð var í forsetatíð Georges Bush. Eftir árásina á Bandaríkin 11. september árið 2001 fengu starfsmenn bandarísku leyniþjónustunnar CIA sérstakar heimildir til þess að beita fanga hörku við yfirheyrslu, ef þeir voru grunaðir um að búa yfir vitneskju um frekari árásir. Þetta var gert með fjórum skriflegum heimildum frá dómsmálaráðuneytinu sem voru merktar top secret eða algert leyndarmál. Meðal annars var leyft að halda föngum nöktum í sársaukafullum stellingum langtímum saman í köldum klefum. Það var leyft að ræna þá svefni, svelta þá og löðrunga. Þá var einnig leyft að geyma þá langtímum saman í hlekkjum og hóta fjölskyldum þeirra. Árið 2002 gekk svo dómsmálaráðuneytið enn lengra þegar það heimilaði sérstaka meðferð á fanganum Abu Zubaydah. Zubaydah virtist vera hræddur við skordýr og CIA fékk heimild til þess að loka hann inni í þröngu boxi og fylla það af margfætlum. Sú aðferð var raunar ekki notuð. Hinsvegar fékkst einnig leyfi til þess að beita því sem kallað er vatnsbrettið. Þá er fanginn bundinn á bretti og því hallað svo höfuð hans vísi niður. Hetta er sett yfir höfuðið og svo er hellt vatni yfir hettuna.Það leiðir til mikillar drukknunartilfinningar, skelfingar, ógleði og uppkasta. Í réttarhöldum yfir japönskum hermönnum eftir síðari heimsstyrjöldina voru margir þeirra sakaðir um að beita þessari aðferð en hún er skilgreind sem pyntingar í Bandaríkjunum. Þessar leyniheimildir hefur Barack Obama nú látið gera opinberar. Hann fullvissaði þó einnig starfsmenn CIA um að þeir yrðu ekki sóttir til saka þar sem þeir hefðu starfað samkvæmt heimildum frá dómsmálaráðuneytinu.
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Sjá meira