Fékk áfall yfir dýrum ritföngum 24. ágúst 2009 12:22
Kona sem keypti sér ritföng í Eymundsson á dögunum fékk áfall þegar hún kom að kassanum og heyrði hvað vörurnar kostuðu.Konan missti nýlega vinnuna og í staðinn fyrir að fara á bætur, ákvað hún að fara í nám. Konan segist ekki verai búin að snerta vörurnar. Hún keypti pennaveski, nokkra penna, yddara og skóladagbók. Saman mátti þetta kosta 10.005 krónur. Konan íhugar að skila vörunum. Konan segist hafa skotist inn í Eymundson í Smáralind í þeim tilgangi að kippa með sér nokkrum pennum, og bjóst við útgjöldum milli 3-4000. Henni brá því þegar hún var rukkuð um rúmar tíuþúsund krónur. Hún segist aldrei hafa verið „þessi týpa" sem telur hverja einustu krónu - fyrr en nú. Konan segist hafa keypt fyrir börnin sín tvö, það sem tilgreint var á lista frá skólanum. Kostnaður per barn er tíu þúsund, svipað og ritföngin hennar kostuðu.Vörurnar kostuðu rúmar tíuþúsund krónur.Konan undrast að yddari geti kostað 740 krónur. Hún segist skilja vel að fólk eigi í vandræðum með að koma börnunum sínum í skólann, sérstaklega þau sem eiga börn á menntaskólaaldri. Borgar Jónsteinsson, rekstrarstjóri verslanasviðs hjá Eymundsson, segir að vegna þess mikla vöruúrvals hjá Eymundsson sé hægt að finna dýr ritföng, en að sama skapi mjög ódýr. „Það er sjálfsagt hægt að finna yddara sem kostar 740 krónur, ef það er eitthvert merki. Það er líka hægt að finna yddara undir hundrað krónum," segir Borgar. Hann segir vörurnar óneitanlega hafa hækkað eitthvað, en ekki eins mikið og reiknað var með. Borgar segir Eymundsson leggja upp með að bjóða breiðara úrval en gengur og gerist. „Það er hægt að versla dýrt, og þú getur verslað ódýrt. Við pössum sérstaklega vel uppá að það séu til ódýrari vörur líka, og erum nokkuð ánægðir með sjálfa okkur hvað það varðar."
Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Erlent Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Innlent Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Erlent Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fleiri fréttir Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Sjá meira