Tugir manna fylgdu Estemirovu til grafar 17. júlí 2009 01:00 Baráttukona Syrgð Um hundrað manns komu saman fyrir utan skrifstofur mannréttindasamtakanna Memorial í Moskvu.Nordicphotos/AFP
Rússneska baráttukonan Natalía Estemirova var borin til grafar að múslimskum sið í Grosní, höfuðborg Téténíu, daginn eftir að hún var myrt. Bæði Dmitrí Medvedev Rússlandsforseti og Ramzan Kadyrov, forseti Téténíu, sögðust í gær sannfærðir um að morðingjar Estemirovu myndu finnast og yrðu dregnir fyrir dóm. Medvedev sagði hana hafa verið myrta vegna rannsókna hennar á mannránum, morðum og fleiri mannréttindabrotum í Téténíu, en vísaði því á bug að Kadyrov ætti þar einhvern hlut að máli. Estemirova hafði árum saman unnið að því að rannsaka mannréttindabrot bæði rússneskra og téténskra stjórnvalda í hinu stríðshrjáða lýðveldi Téténíu og samstarfsfólk hennar sakar bæði Kadyrov og Vladimír Pútín forsætisráðherra um að tengjast láti hennar. Hún var myrt samdægurs og skýrsla var birt þar sem settar eru fram harðar ásakanir á hendur bæði rússneskum stjórnvöldum og stjórnvöldum í Téténíu. Irene Khan, framkvæmdastjóri mannréttindasamtakanna Amnesty International, segir morðið vera afleiðingar refsileysis sem stjórnvöld láti viðgangast. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, áréttaði við Medvedev í München í gær að mikilvægt væri að þeir seku næðust. - gb
Mest lesið Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Erlent „Varð að martröð“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Erlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Erlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent Fleiri fréttir Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Einn í lífshættu eftir að bíl var ekið inn í þvögu Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Farage sextánfaldar sætin á sveitarstjórnarstiginu Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Sjá meira