Erlent

Ekkert lát á blóðugum átökum á Srí Lanka

Ekkert lát er á blóðugum átökum stjórnarhers og uppreisnarmanna Tamíltígranna á norðurhluta Srí Lanka. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna og Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hvöttu í gær tígranna til að leggja niður vopn og hætta baráttu við stjórnarhermenn svo bjarga megi tugþúsundum almennra borgara sem enn eru innlyksa á bardagasvæðinu.

Fulltrúar Alþjóða Rauða krossins segja að þriðja daginn í röð hafi þeim ekki tekist að koma særðum borgurum um borð í ferju svo koma megin fólkinu undir læknis hendur. Hjálpargögn hafi heldur ekki verið hægt að flytja til nauðstaddra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×