Finninn fljúgandi gripinn á jóladag 29. desember 2009 00:15 Með eiginkonunni Mynd frá árinu 2004. Matti Nykanen og kona hans Merja Tapola í dómhúsinu í Tampere í Finnlandi. Nykanen sem er 46 ára er nú í haldi lögreglu grunaður um að hafa reynt að ráða konu sinni bana. Fréttablaðið/Ap
Matti Nykanen, fjórfaldur Ólympíumeistari í skíðastökki, er í haldi lögreglu í Finnlandi grunaður um að hafa reynt að drepa konu sína á jóladag. Nykanen, sem er 46 ára gamall, er einn af helstu íþróttahetjum Finna og var á hátindi frægðar sinnar þekktur undir heitinu „Finninn fljúgandi“. Hann var handtekinn eftir að hafa ráðist á konu sína, Mervi Tapola, og veitt henni áverka bæði á höfði og hendi. Samkvæmt fjölmiðlum ytra er konan sögð hafa flúið heimili þeirra og kallað til lögreglu hjá nágranna. Nykanen naut mikilla vinsælda heima fyrir en hann hlaut þrenn gullverðlaun á vetrarólympíuleikunum í Calgary árið 1988 og bæði gull og silfur á Ólympíuleikunum í Sarajevo árið 1984. Breska ríkisútvarpið BBC greinir einnig frá því að hann hafi unnið fimm gullverðlaun á heimsmeistaramótum og þrettán slík verðlaun á mótum heima fyrir. Eftir að Nykanen hætti keppni á tíunda áratug síðustu aldar hefur líf hans verið markað persónulegum vandamálum. Hann hefur fengið á sig dóma vegna árásarmála og mun hafa átt í vandræðum vegna ofneyslu áfengis. Frá því að íþróttaferlinum lauk hefur Nykanen starfað sem tónlistarmaður og fatafella. - óká
Mest lesið Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Innlent Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Innlent Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Innlent Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Erlent Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Erlent Fleiri fréttir Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepnir í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Sjá meira