Erlent

Dýrasti bíll heims seldist á uppboði

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Ferrari 250.
Ferrari 250.

Árgerð 1957 af Ferrari 250 Testa Rossa varð á sunnudaginn dýrasti bíll sem selst hefur á uppboði í heiminum þegar hann fór á rúmar níu milljónir evra á uppboði, eða um það bil einn og hálfan milljarð króna. Það er 340 milljónum hærra verð en fékkst fyrir þann bíl, sem áður átti metið, en það var líka Ferrari og seldist sá á uppboði fyrir tveimur árum. Aðeins 22 bílar af þeirri gerð sem nú var seldur voru smíðaðir á árunum 1957 og ´58.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×