Skart rappara hríðfellur í verði Atli Steinn Guðmundsson skrifar 28. maí 2009 08:14 Rapparinn Litli-Jón (e. Lil Jon) með frægt gullskilti sitt, „Crunk ain't dead“ sem ætla má að hafi nær sligað hann. MYND/Stuart Ramson/AP
Harðnandi árferði gerir það að verkum að rapptónlistarmenn draga nú úr gullskreytingum sínum og bera jafnvel gerviskartgripi. Ekki er allt gull sem glóir, segir gamalt og gott máltæki og það fá þeir félagar Curtis James Jackson og aðrir í rapptónlistarbransanum svo sannarlega að reyna á eigin skinni þessa dagana. Jackson þessi er reyndar betur þekktur undir heitinu 50 Cent og hefur marga fjöruna sopið í tónlistarbransanum en það verður að segjast eins og er að sjaldan hefur listamannsheitið 50 Cent, sem á gengi dagsins mætti útleggja 63 krónur, átt jafn-vel við. Nú er nefnilega svo komið að mörg kíló af gulli og demöntum sem þessir piltar skreyta sig gjarnan með hafa mátt víkja fyrir ódýrari málmum, gullhúðuðu glingri og eftirlíkingum. Þeir dagar eru nefnilega liðnir, að minnsta kosti í bili, þegar menn völsuðu um með skart, sem slagaði hátt í fjárlög smáríkja, utan á sér og jafnvel tennur í stíl. Rappstjörnuskartgripahönnuður, sem breska blaðið Guardian ræddi við og vildi reyndar ekki láta nafns síns getið, sagði að nú lækkaði karatatala gullsins hratt og sumir tónlistarmenn hefðu jafnvel dregið svo mjög úr gullkeðjum, hringum og öðru skarti að þeir gætu næstum því hreyft sig eðlilega. „Þetta er orðið dót í lægsta gæðaflokki sem er varla túskildings virði," sagði annar viðmælandi.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira