Dalai Lama veitt vegabréfsáritun í S-Afríku Guðjón Helgason skrifar 15. maí 2009 13:45 Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta. Mynd/AP
Ný ríkisstjórn Suður-Afríku hefur ákveðið að snúa ákvörðun fyrri stjórnar og veita Dalai Lama, andlegum leiðtoga Tíbeta, vegabréfsáritun. Hann getur því sótt friðarráðstefnu sem haldin verður í landinu á næsta ári. Dalai Lama kemur í heimsókn til Íslands í sumar. Fyrri ríkisstjórn í Suður-Afríku setti í mars blátt bann við því að Dalai Lama, útlægur leiðtogi Tíbeta og friðarverðlaunahafi Nóbels, fengi vegabréfsáritun til Suður-Afríku. Þannig var honum ómögulegt að koma til landsins á næsta ári til að sækja friðarráðstefnu sem haldin verður í tengslum við Heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu sem haldin er í Suður-Afríku 2010 en friðarverðlaunahöfum Nóbels er boðið. Sú ástæða var gefin að heimsókn Dalai Lama myndi draga athyglina frá heimsmeistarakeppninni sem væri verið að halda í fyrsta sinn í álfunni. Suður-Afríkumenn voru gagnrýndir harðlega fyrir þetta og sagðir hafa látið undan þrýstingi frá stjórnvöldum í Kína sem hafa skoðun á því hvert Dalai Lama fer og hverja hann hittir og andmæla harðlega í hvert sinn sem hann hittir þjóðarleiðtoga á ferðum sínum. Desmond Tutu, erkibiskum í Suður-Afríku, og de Klerk, forseti Suður-Afríku á síðustu árum aðskilnaðarstefnunnar, sem báðir hafa fengið friðarverðlaun Nóbels, hótuðu báðir að sniðganga ráðstefnuna. Í morgun var tilkynnt að ný ríkisstjórn Jacobs Zuma forseta hefði ógilt fyrri í ákvörðun. Dalai Lama fengi vegabréfsáritun. Þannig gæti hann komið til landsins hvenær sem hann vildi. Dalai Lama kemur til Íslands í fyrsta sinn í byrjun næsta mánaðar. Forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, gefst ekki kostur á að hitta hann þar sem forsetinn verður á Kýpur ásamt tæplega 200 íslenskum íþróttamönnum sem taka þátt í smáþjóðaleikunum sem eru haldnir þar. Fréttastofa hefur ekki upplýsingar um að ráðherrar í ríkisstjórn Íslands hitti Dalai Lama meðan á heimsókn hans stendur. Kínverska sendiráðið hafi samband við utanríkisráðuneytið íslenska í febrúar þegar greint var fyrst frá því að Dalai Lama væri væntanlegur hingað til lands og kom á framfæri mótmælum kínverska yfirvalda.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Sjá meira