Umönnun aldraðra eykur drykkju Breta Atli Steinn Guðmundsson skrifar 6. maí 2009 08:22 Gripið í glasið til að létta á þrýstingnum frá þeirri gömlu.
Umönnun eldri ættingja er orðin bresku millistéttarfólki svo þungbær að hún hefur valdið stóraukinni drykkju. Athugun Joseph Rowntree-velferðarstofnunarinnar í Bretlandi leiddi í ljós að áfengisneysla hefur tvöfaldast hjá aldurshópnum 45 - 64 ára síðustu 15 árin. Fyrir eiga Bretar Evrópumet í unglingadrykkju svo það má segja að farið sé að syrta í álinn hjá heimsveldinu gamalgróna. En hvað veldur tvöfölduninni? Jú, það er álagið sem fylgir því að annast foreldra og aðra ættingja sem eru að verða undir í glímunni eilífu við elli kerlingu. Þessi umönnun virðist æði þungbær þar sem árin 1992 - 2006 jókst meðaláfengisneysla þessa hóps úr tveimur og hálfu í tæplega fimm glös á viku og er þá miðað við staðlað 175 millilítra vínglas. Nú er talið að meira en þrjár milljónir Breta neyðist til þess að hlaupa undir bagga með foreldrum sínum fjárhagslega eftir að fjármálakerfið hrundi og lífeyrisgreiðslur hættu að duga elstu kynslóðinni til þess að draga fram lífið. Ofan á það annast margar milljónir foreldra sem geta ekki lengur komist hjálparlaust gegnum daglegt líf og í mörgum tilfellum búa hinir aldurhnignu foreldrar á heimilum barna sinna. Rowntree-stofnunin kallar eftir athygli breskra ráðamanna og skorar á þá að hækka áfengisverð í þeirri viðleitni að draga úr þorstanum.
Mest lesið Átta ár fyrir að bana Bryndísi Klöru Innlent Hætta framleiðslu innanhúss og segja upp fólki Innlent Mun sjá eftir árásinni alla ævi Innlent Ellefu slasaðir og þrír alvarlega í Kaupmannahöfn Erlent Ofsakláði grípur Spaugstofumenn Innlent Segir Jon Øigarden Ingvar E þeirra Norðmanna Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Erlent Málið áfall fyrir embættið Innlent Ráðherra vill að leigubílsstjórar tali íslensku Innlent Frekari breytingar í Valhöll Innlent Fleiri fréttir Sænskur blaðamaður dæmdur fyrir að móðga Erdogan Ellefu slasaðir og þrír alvarlega í Kaupmannahöfn Segja 4.700 Kimdáta hafa fallið eða særst Danakonungur til Grænlands í annað sinn á skömmum tíma Ungi morðinginn flúði nýverið af vistheimili Segir sveppaeitrunina hafa verið „hörmulegt óhapp“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Ungur maður handtekinn vegna morðanna í Uppsölum Fagnaði fyrstu hundrað dögunum í Hvíta húsinu Pakistan segir Indland mögulega gera árás á næstu klukkustundum Árásarmannsins enn leitað Þrír látnir eftir skotárás í Uppsölum Fella niður hluta ákæru á hendur meintum sveppamorðingja Íhuga að loka Everest öðrum en reyndu göngufólki Bannað að selja auðmönnum evrópskan ríkisborgararétt Orsakir rafmagnsleysisins sögulega enn óþekktar Fjórir létust þegar bíl var ekið í gegnum frístundaheimili Allt að komast í samt lag á Spáni og í Portúgal Carney og Frjálslyndir fóru með sigur af hólmi Rafmagn að koma aftur á: Íslendingar lýsa mikilli óvissu Spennan eykst milli Indlands og Pakistan Allt í rugli á Rauðahafi Hvetur Kanadamenn að kjósa sig Lýsir yfir einhliða vopnahléi vegna sigurhátíðar í næstu viku Rafmagnsleysið „fordæmalaust“ en engar vísbendingar um tölvuárás Páfakjör hefst í næstu viku Umfangsmiklar og óútskýrðar rafmagnstruflanir á Íberíuskaga Mæðgur alvarlega særðar eftir sprengingu í úthverfi Stokkhólms Rússar segjast hafa handsamað morðingja herforingjans Ökumaðurinn í Vancouver ákærður fyrir manndráp Sjá meira
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Erlent
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Erlent