Vonbrigði segir orkumálastjóri 21. júlí 2009 05:15 Erfiðir tímar Aðeins ein umsókn um rannsókn og vinnslu á Drekasvæðinu stendur eftir, segir Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri.
Annað tveggja fyrirtækja sem sótti um leyfi til rannsókna og vinnslu olíu á Drekasvæðinu hefur dregið umsókn sína til baka. Orkumálastofnun barst í gær bréf frá forsvarsmönnum Aker Exploration, þar sem þeir draga umsókn sína frá því í maí síðastliðnum til baka. Í bréfinu segir að ákvörðunin komi í kjölfar breytinga á stefnu fyrirtækisins. Orkustofnun hefur engar frekari upplýsingar fengið, segir Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri. „Við vissum auðvitað þegar við buðum þetta út í vor að þetta eru erfiðir tímar. Við vorum ánægðir með að fá tvö tilboð, en auðvitað eru það vonbrigði að annað fyrirtækið detti út," segir Guðni. Fyrirtækin Sagex Petroleum og Lindir Explorations buðu í sameiningu í leyfi til rannsókna og vinnslu eins og Aker, en á öðru svæði. Umsókn þeirra stendur óhögguð. Guðni segir að Orkumálastofnun fjalli nú um umsókn Sagex og Linda. Vonir standi til að samningar náist í október. Í framhaldinu verði tekin afstaða til þess hvort leit og vinnsla á Drekasvæðinu verði boðin út að nýju. Fleiri fyrirtæki lýstu í vor áhuga á að sækja um leyfi, en féllu frá því að sækja um vegna erfiðs ástands á fjármálamörkuðum, segir Guðni. Ekki náðist í forsvarsmenn Aker Explorations í gær. - bj
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Sjá meira