Erlent

Kortleggja glæpastarfsemi í Bretlandi

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Þeir félagar Colin Joyce og Lee Amos stjórna Gooch-genginu sem ber ábyrgð á miklum vígaferlum á götum Manchester.
Þeir félagar Colin Joyce og Lee Amos stjórna Gooch-genginu sem ber ábyrgð á miklum vígaferlum á götum Manchester. MYND/PA

Að minnsta kosti 30.000 afbrotamenn í Bretlandi tilheyra einhvers konar skipulögðum glæpahópum. Þetta er niðurstaða rannsóknar þarlendrar lögreglu sem hefur nú í fyrsta sinn kortlagt glæpastarfsemi á Englandi og í Wales. Allt að 4.000 glæpahópar af einhverju tagi eru starfandi á því svæði sem rannsóknin náði til og spannar starfsemi þeirra allt frá ránum á götum úti upp í eiturlyfjasmygl og mansal. Ný áhersla hefur nú verið lögð á að dæma stórtæka afbrotamenn fyrir skattsvik og koma þeim þannig bak við lás og slá, líkt og mafíuforingjanum Al Capone á sínum tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×