Uppreisnarher Tamíltígra leggur niður vopn 18. maí 2009 06:00 Fjöldi fólks fagnaði endalokum stríðsins sem hefur kostað yfir sjötíu þúsund manns lífið síðastliðin 25 ár.mynd/ap
Uppreisnarher Tamíltígra hefur gefist upp í 25 ára löngu stríði sínu við stjórnvöld á Srí Lanka. Bauðst hann til að leggja niður vopn sín í gær eftir að stjórnarherinn réðst af krafti inn í sterkasta vígi þeirra í norðausturhluta landsins. Þegar íbúar Srí Lanka fréttu af endalokum stríðsins þyrptust þeir út á götur og fögnuðu gríðarlega. „Þessi sigur tryggir okkur betri framtíð fyrir komandi kynslóðir,“ sagði Prasanna Jayawardena, sem skaut upp flugeldum úti á götu. Mahinda Rajapaksa, forseti Srí Lanka, ætlar að halda blaðamannafund á þriðjudagsmorgun sem verður sýndur beint úr þinghúsi landsins þar sem hann lýsir því yfir að stríðinu sé lokið. Selvarasa Pathmanathan, yfirmaður hjá Tamíltígrunum sendi út yfirlýsingu í gær þar sem hann lýsti yfir ósigri sinna manna. „Fólkið okkar er að deyja af völdum sprengna, skotárása, veikinda og hungursneyðar. Við verðum að koma í veg fyrir meiri skaða. Eini kosturinn okkar er að taka í burtu einu ástæðuna fyrir óvin okkar til að drepa okkur. Við höfum ákveðið að þagga niður í byssum okkar,“ sagði hann. Alls hafa rúmlega sjötíu þúsund manns látist í stríðinu á Srí Lanka en á undanförnum mánuðum hafa um 250 þúsund almennir borgarar yfirgefið helstu átakasvæðin í landinu. Átökin hafa verið sérlega mikil á þessu ári og að sögn Sameinuðu þjóðanna voru sjö þúsund almennir borgarar drepnir og 16.700 særðust frá 20. janúar síðastliðnum til 7. maí. - fb
Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent Fleiri fréttir Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Sjá meira