Erlent

Tveir særðir eftir skotárás á safni

Frá vettvangi fyrir stundu.
Frá vettvangi fyrir stundu. Mynd/ Getty
Tveir eru særðir eftir skotárás á Holocaust Memorial safninu í Washington DC. Maður gekk inn í andyri safnsins vopnaður riffli og hóf skothríð. Hann hæfði vörð en kollegar varðarins náðu að gjalda skotmanninum í sömu mynt og liggja þeir báðir á George Washington spítalanum.

Ástand varðarins er sagt vera alvarlegt en skotmaðurinn er í lífshættu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×