Erlent

Palestínumenn hafna frekari stækkun landnemabyggða Ísraela

Saeb Erekat, aðalsamningamaður Palestínumanna. Mynd/AFP
Saeb Erekat, aðalsamningamaður Palestínumanna. Mynd/AFP
Palestínumenn hafna hverskonar samningum milli Bandaríkjanna og Ísraels um frekari stækkun landnemabyggða Ísraela. Sá orðrómur hefur verið á kreiki að Bandaríkjamenn og Ísraelar séu að reyna að ná málamiðlun um það sem Ísraelar vilja kalla eðlilega stækkun landnemabyggða.

Saeb Erekat, aðalsamningamaður Palestínumanna, sagði í viðtali við palestínskt dagblað að ekki kæmi til greina að fallast á neitt slíkt. Ísraelskt blað skýrði frá því um helgina að Bandaríkjamenn hefðu fallist á byggingu 2500 húsa í landnemabyggðum sem þegar væru til staðar á Vesturbakkanum. Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins hefur vísað því á bug.

Barack Obama forseti hefur lagt hart að Ísraelum að hætta öllum framkvæmdum á Vesturbakkanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×