Rottueyja rottulaus í fyrsta sinn í 229 ár Atli Steinn Guðmundsson skrifar 15. júní 2009 07:31 Þessar rottur tengjast fréttinni ekki.
Rottur hafa verið ráðandi tegund á Rottueyju síðan árið 1780. Þá fórst japanskt skip í nágrenni eyjarinnar og allar rottur sem um borð voru syntu í land á Rottueyju, sem reyndar hét ekki Rottueyja þá heldur Aleutian-eyja. Um var að ræða brúnrottur og gerðust þær svo skæðar á hinu nýfengna eylandi sínu að allar aðrar dýrategundir höfðu sig á brott eða voru hreinlega étnar, allt nema stærstu fuglar. En það er af sem áður var, Fiski- og villidýrastofnun Bandaríkjanna tók að sér að demba rottueitri úr þyrlum yfir Rottueyju síðasta haust og stóðu þær loftárásir linnulaust í eina og hálfa viku. Aðgerðirnar báru tilætlaðan árangur og nú segjast eftirlitsmenn ekki koma auga á eina einustu rottu á eyjunni en fuglar séu hins vegar farnir að gera sig heimankomna þar á ný. Kannski er það eins gott að aðgerðirnar skiluðu árangri þar sem eiturflugið kostaði hvorki meira né minna en tvær og hálfa milljón dollara og kallar Reuters-fréttastofan tiltækið metnaðarfyllstu tilraun fram að þessu til að losa eyland við skaðræðistegund. Hafi í raun tekist svo vel til að útrýma rottunum gjörsamlega er eyjan rottulaus í fyrsta sinn í 229 ár og vafasamt hvort nafnið eigi við hana lengur.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira