Erlent

Rólegra í Teheran

Ró færðist yfir götur Teheran í Íran í dag eftir að ríkissjónvarpsstöðin þar í landi greindi frá því að tíu til viðbótar hafi látist í átökum mótmælenda og óeirðalögreglu í gær. Sjónvarpsstöðin greindi líka frá því lögregla hafi handtekið dóttur og fjóra aðra ættinga fyrrverandi forseta landsins, Hashemi Rafsanjani, í gær. Rafsanjani er einn valdamesti maður landsins.

Upplausn hefur verið í miðborg Teheran í rúma viku, eða frá því úrslit forsetakosninga þar í landi lágu fyrir þann 12. júní. Samkvæmt írönskum fjölmiðlum létust tíu í átökunum í gær, en staðfest dauðsföll eru þá komin upp í nítján á liðinni viku. Reuters fréttastofan greindi frá því rétt í þessu að endurtekin skothljóð heyrist nú frá tveimur hverfum í Teheran, en mjög óljósar upplýsingar hafa hingað til borist um atburði liðinnar viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×