Erlent

Gáfu dóttur sinni mannshöfuð

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Ekki er hlaupið að því að velja mynd með fréttinni.
Ekki er hlaupið að því að velja mynd með fréttinni.

Hjón í Sichuan-héraðinu í Suðvestur-Kína hafa verið dæmd fyrir að matreiða mannshöfuð og gefa dóttur sinni það í súpu en það taldi móðirin geta læknað dótturina af geðrænum kvillum sem hún þjáðist af. Hjónin fengu þriðja aðila til að myrða 76 ára gamlan mann og taka höfuðið af honum. Þau matreiddu höfuðið því næst og báru fyrir dóttur sína ásamt önd. Sá sem fenginn var til að myrða manninn var dæmdur í ævilangt fangelsi og móðirin hlaut dóm fyrir að fela sönnunargögn. Ekki fylgdi sögunni hve langa dóma hjónin hlutu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×