Erlent

Golfari varð fyrir eldingu

Myndin tengist ekki þessari frétt.
Myndin tengist ekki þessari frétt.

Roskinn danskur golfleikari beiða bana og annar brenndist á hendi, þegar þrumuveður gekk yfir golfvöllinn í Skörping á Norður-Jótlandi í Danmörku í gær og þeir urðu fyrir eldingum. Þriðji maðurinn, sem var með þeim, slapp ómeiddur. Þeir voru að flýja upp í skálann undan veðrinu þegar þeir urðu fyrir eldingunum. Svona slys eru afar fátíð í Danmörku. Stjórnandi golfklúbbisns gefur kylfingum það heilræði að halda sig fjarri golfkerrunni með kylfunum og kasta sér flötum ef eldingar byrja óvænt að leiftra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×