Innlent

Opnar á marga möguleika

Ólafur Þór Hauksson
Ólafur Þór Hauksson

Embætti sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins mun taka vel í boð bresku efnahagsbrotadeildarinnar, Serious Fraud Office (SFO), um aðstoð við rannsókn á íslenskum fyrirtækjum í Bretlandi, segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari.

Boð um aðstoð hefur ekki borist, en SFO hefur sent Evu Joly, ráðgjafa sérstaks saksóknara, bréf þar sem óskað er eftir fundi. Ólafur staðfestir að Joly hafi verið í sambandi við fulltrúa SFO í nokkurn tíma til að undirbúa mögulegt samstarf.

„Við tökum þessu boði vel, það opnar á mjög marga möguleika," segir Ólafur. Það sé vel hugsanlegt að SFO geti aðstoðað, og því jákvætt að þessi möguleiki sé kominn upp.

Joly þekkir ágætlega til innan SFO, en einnig hafa verið þreifingar í gangi varðandi mögulegt samstarf í gegnum íslenskan tengslafulltrúa hjá Europol, segir Ólafur.

Sagt er frá samskiptum SFO við Joly í frétt breska blaðsins Daily Telegraph. Þar kemur fram að fulltrúar SFO hafi sérstakan áhuga á málum tengdum Kaupþingi, til dæmis því hvort um markaðsmisnotkun hafi verið að ræða þegar hlutabréf í Kaupþingi voru seld breskum fjárfestum með lánum frá Kaupþingi.

Ekki náðist í Evu Joly í gær. Hún mun vera í sumarfríi, en er væntanleg hingað til lands í lok ágúst. - bj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×