Börn á leikskólaaldri skutu systkini sín 25. júlí 2009 11:26 Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Tvö börn á leikskólaaldri skutu og særðu önnur börn í tveimur tilvikum í Bandaríkjunum. Þriggja ára drengur skaut fjögurra ára gamlan bróður sinn í Gray Court í Suður Karólínu, með 22 kalíbera skammbyssu á fimmtudag. Í morgun skaut svo fjögurra ára drengur tveggja ára systur sína. Drengurinn sem særðist í fyrri árásinni var fluttur með flugi á sjúkrahús með skotsár á maga. Hann undirgekkst aðgerð og talið er að hann muni ná sér. Bræðurnir voru í heimsókn ásamt föður sínum hjá vinafólki þegar þriggja ára drengurinn vaknaði um nóttina og fann byssuna undir rúminu. Fyrir slysni hljóp skot af byssunni og hæfði bróðurinn. „Börn sjá ýmislegt í sjónvarpinu og leika sér með leikfangabyssur. Hinn þriggja ára drengur vissi líklegast ekkert hvað hann var með í höndunum og hafði ekki í huga að meiða bróður sinn," sagði varðstjóri lögreglunnar svæðinu, Ricky Chastain. Í hinu tilvikinu liggur tveggja ára stúlka þungt haldin á spítala eftir að fjögurra ára bróðir hennar skaut hana á heimili þeirra í Las Vegas. Faðir barnanna var heima þegar slysið átti sér stað. Lögregla rannsakar nú hvernig drengurinn komst yfir 9 millimetra skammbyssu. Meðan hann handlék byssuna hljóp skot úr byssunni og beint í búk systur hans. Að sögn lögreglu virðist sem byssan hafi ekki verið geymd á öruggum stað og þess vegna hafi drengurinn komist yfir vopnið. Þessi óhöpp áttu sér stað einungis fimm dögum eftir að fimm ára drengur tók eigin líf með skammbyssu í bifreið föður síns fyrir utan apótek í Las Vegas. Faðir hans hefur verið ákærður fyrir vanrækslu.
Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Líkfundur við Austurbæjarskóla Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Hafa borið kennsl á hinn látna Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Leita karlmanns á sjötugsaldri Innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Fleiri fréttir Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Sjá meira