Erlent

Mannskæðar sprengjuárásir í Pakistan

Frá borginni Peshawar í Pakistan fyrr í dag.
Frá borginni Peshawar í Pakistan fyrr í dag. Mynd/AP

Að minnsta kosti tíu eru látnir og hið minnsta 70 eru slasaðir eftir tvær sprengjuárásir í dag í borginni Peshawar sem er í norðausturhluta Pakistans. Tvær sprengjur sprungu á markaði í miðbæ borgarinnar og þar er talið að sex einstaklingar hafi fallið. Á sama tíma sprengdi karlmaður með sprengjubelti sig í loft upp við starfsstöð hersins í útjaðri borgarinnar og þar féllu að minnsta kosti fjórir.

Árásirnar voru gerðar skömmu eftir að talibanar höfðu lýst ábyrgð á sprengjutilræðinu í Lahore í Pakistan í gærmorgun. 26 lét lífið í tilræðinu og rúmlega 200 slösuðust.

Talibanar vöruðu jafnframt við fleiri árásum í öðrum borgum í Pakistans vegna hernaðar pakistanska hersins gegn talibönum í Swat-dalnum við landamæri Pakistans og Afganistans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×