Erlent

Öflugur skjálfti undan ströndum Hondúras

Öflugur jarðskjálfti, 7,1 á Richter-kvarða reið yfir undan ströndum Hondúras í morgun. Upptök skjálftans eru um 64 kílómetra undan ströndum landsins og var hann á tiltölulega grunnu dýpi að því er landfræðistofnun Bandaríkjanna segir. Fylgst er með því hvort skjálftanum fylgi flóðbylgja. Engar fréttir hafa borist af tjóni af völdum skjálftans en hann fannst greinilega í Hondúras og í Gvatemala.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×