Erlent

John Yettaw í vitnastúkuna

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
John Yettaw.
John Yettaw.

Bandaríkjamaðurinn John Yettaw, sem heimsótti stjórnarandstöðuleiðtogann Aung San Suu Kyi á Búrma í stofufangelsi hennar, kom fyrir rétt í gær og bar vitni í réttarhöldunum yfir henni. Yettaw, sem er 53 ára gamall fyrrverandi hermaður frá Missouri, lagði ríka áherslu á það við dómarann þær þrjár klukkustundir sem hann var yfirheyrður, að guð hefði sent hann til Búrma til að vernda Suu Kyi eftir að hann dreymdi að hún yrði fyrir árás hryðjuverkamanna. Eins sagðist Yettaw aldrei hafa komist inn í hús hennar þótt hann hefði reynt það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×