Erlent

Pelosi vill að Kínverjar beiti sér í málefnum N-Kóreu

Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, í Peking í dag.
Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, í Peking í dag. Mynd/AP
Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, fordæmir kjarnorkutilraunir Norður-Kóreumanna. Jafnframt hvetur hún ráðamenn í Kína til að beita áhrifum sínum og fá Norður-Kóreumenn til að láta af tilraunum sínum með skammdrægar eldflaugar.

Þetta kom fram í máli Pelosi þegar hún ræddi við fréttamenn í Peking. Þar er hún stödd ásamt föruneyti til að ræða aðgerðir til að bregðast við loftslagsbreytingum.

Kjarnorkutilraunir Norður-Kóreumanna hafa víða verið gagnrýndar. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdi fyrr í vikunni þá ákvörðun Norður-Kóreumanna að sprengja hátt í 20 kílótonna kjarnorkuvopn neðanjarðar í tilraunaskyni. Ályktun er í undirbúningi og mögulega refsiaðgerðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×