Erlent

Felldu 34 talibana í Pakistan

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Á morgun kemur nýr dagur, með...talibönum. Myndin tengist ekki þessari frétt.
Á morgun kemur nýr dagur, með...talibönum. Myndin tengist ekki þessari frétt.

Hersveitir NATO létu til skarar skríða ásamt afgönskum lögreglumönnum í nótt og drápu 34 talibana í árás á þorp í suðausturhluta Pakistans. Fyrst felldu þeir 15 talibana í návígi en hinir féllu þegar sprengjum var varpað á þorpið skömmu síðar. Einn hermaður úr röðum NATO særðist í aðgerðinni en annars varð ekkert manntjón þeim megin. Talsmaður NATO í Afganistan staðfesti við Reuters-fréttastofuna að árásin hefði átt sér stað en vildi ekki staðfesta að fleiri en 27 talibanar hefðu verið drepnir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×