Átta látist í eldum í Suður evrópu 26. júlí 2009 13:27 Skógareldar. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Átta hafa látist í miklum eldum sem geisað hafa í Suður Evrópu undanfarna daga. Hitabylgja og miklir vindar hafa hamlað slökkvistarfi. Eldarnir sem nú geisa hafa brennt hátt í sex þúsund hektara lands frá því á fimmtudaginn. Slökkvistarf hefur gengið erfiðlega og loga enn landssvæði víða. Íbúar á svæðinu hafa spúlað hús sín með vatni til að koma í veg fyrir að þau verði eldinum að bráð. Slökkviliðsmenn reyna líka hvað þeir geta að vernda húsin með því að dæla vatni yfir þau. Víða í Evrópu hafa íbúar í hudraðatali þurft að yfirgefa heimili sín vegna eldhættu. Lögregla á eyjunni Korsíku í Frakklandi hefur handtekið þrjá menn. Tveir bændur, 24 og 21 árs eru í haldi vegna gruns um að hafa valdið eldsupptökum og þá er þriðji maðurinn í haldi grunaður um íkveikju. Á Korsíku hafa miklir eldar geisað frá því fyrir helgi og hafa fimm flugvélar frá Kanada aðstoðað við slökkvistarf. Íbúi á svæðinu sagðist ekki ætla að yfirgefa hús sitt þótt eldur logaði í um tíu metra fjarlægð. Hann sagði íbúa rólega þrátt fyrir að eldurinn væri allstaðar. Á Ítalíu berjast nú um 1500 slökkviliðsmenn og aðrir sjálfboðaliðar við að minnsta kosti 17 elda, aðallega á eyjunum Sardiníu og Sikiley. Þar hafa hundruðir líka þurft að yfirgefia hús sín vegna eldanna.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira