Erlent

Bardagar í höfuðborg Sómalíu

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Sómalskir andspyrnuhermenn gráir fyrir vopnum.
Sómalskir andspyrnuhermenn gráir fyrir vopnum.
Annan daginn í röð geysa miklir bardagar í Mogadishu, höfuðborg Afríkuríkisins Sómalíu. Íslamistar í landinu hafa gert uppreisn gegn ríkisstjórn lansdins og hertóku meðal annars lögreglustöð og aðrar opinberar byggingar í borginni. Þrír háttsettir opinberir starfsmenn og stjórnmálamenn hafa verið myrtir í tilræðum í vikunni.

Samtök Íslamista hafa í mörg ár reynt hvað þeir geta til að steypa ríkisstjórn landsins af stóli. Ríkisstjórnin hefur þó takmarkað vald í landinu, sem hefur í raun verið stjórnlaust síðan 1991.

Forseti sómalska þingsins hefur biðlað til nágrannaríkja Sómalíu um herstuðning til að brjóta uppreisnina á bak aftur.

Þetta kemur fram á fréttavef BBC.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×