Erlent

Níðingar í Danmörku

Óli Tynes skrifar
Gasboltabyssa.
Gasboltabyssa.

Danir eru slegnir yfir fréttum um að hópur ungmenna réðist á þroskaheftan fullorðinn mann og skutu hann margsinnis í andlitið með gasboltabyssu af stuttu færi.

Maðurinn sem er sextíu og fimm ára gamall var á leið að heiman frá sér á dagdeild fyrir þroskahefta. Hann mætti sjö eða átta ungum mönnum.

Einn þeirra hljóp að honum rak byssuna í andlit hans og skaut að minnsta kosti tólf skotum.

Í þessum byssum eru harðir plastboltar sem geta meitt af talsverðu færi, hvað þá þegar þeim er skotið úr nokkurra sentimetra fjarlægð.

Maðurinn var fluttur á sjúkrahús, blár og marinn. Árásarmanninum var lýst sem þrekvöxnum araba sem gekk eins og hann hefði tvö franskbrauð undir armkrikunum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×