Erlent

Flugmenn BA samþykkja kauplækkun

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Flugmenn breska flugfélagsins British Airways hafa samþykkt að taka á sig kauplækkun sem ætlað er að spara félaginu 26 milljónir punda, jafnvirði rúmra fimm milljarða króna, á ársgrundvelli. British Airways hefur tapað andvirði yfir 80 milljarða króna eftir að efnahagskreppan hófst og sér fram á mörg þúsund uppsagnir á næstu mánuðum. Búist er við miklum mótmælum verkalýðsfélaga á aðalfundi félagsins í London í dag en mótmælendur krefjast þess meðal annars að Willie Walsh, framkvæmdastjóri British Airways, segi af sér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×