Ætlar að yfirtaka olíu- og gasframleiðslu Breta og Hollendinga 13. janúar 2009 20:04
Evrópusambandið ætlar að yfirtaka olíu- og gasframleiðslu Breta og Hollendinga í samræmi við leynilega valdheimild, að sögn breska blaðsins Daily Express. Daily Express segir að leynileg valdheimild sem hafi verið skrifuð inn í Lissabon samkomulagið geri Evrópusambandinu kleift að yfirtaka orkuframleiðslu einstakra aðildarríkja til hagsmuna fyrir heildina. Breskir þingmenn eru ekki ýkja hrifnir af því að sambandið yfirtaki olíu og gasframleiðslu landsins. William Hague þingmaður Íhaldsflokksins sagði að það væri alrangt að gefa sambandinu ráðstöfunarvald yfir orkulindum Bretlands. Þetta væri því miður dæmi um hvernig hin nýja stjórnarskrá veitti Evrópusambandinu of mikið vald yfir þjóðarhagsmunum einstakra aðildarríkja. Leiðtogi breska Sjálfstæðisflokksins Nigel Farage sagði; ,,Brussel hefur þegar stolið fiskinum okkar. Nú vilja þeir olíuna og gasið". Syed Kamall sem situr á Evrópuþinginu fyrir íhaldsflokkinn sagði; ,,Hin sameiginlega sjávarútvegsstefna hefur þegar lagt fiskimið okkar í rúst. Sameiginleg orkumálastefna myndi gera það sama við það litla sem eftir er af olíulindum okkar. Stjórn Evrópusambandsins er mikið í mun að tryggja öryggi þess í orkumálum. Ekki síst í ljósi þess hve sambandið er orðið óþægilega háð Rússlandi. Rússar sjá því fyrir fjórðungi af því gasi sem aðildarríkin nota.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira