Enski boltinn

Rooney: Getum bara klúðrað þessu sjálfir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rooney fagnar marki Berbatovs.
Rooney fagnar marki Berbatovs. Nordic Photos/Getty Images

Wayne Rooney fór mikinn í liði Man. Utd í dag í sigrinum ótrúlega gegn Tottenham. Spilaði frábærlega og skoraði meðal annars tvö mörk.

„Við vitum vel að við erum í frábærri stöðu. Við verðum samt að nýta þennan leik sem við eigum inni. Það eru fimm leikir eftir og bara við sjálfir sem getum klúðrað þessu," sagði Rooney kampakátur.

„Þetta var gríðarlega mikilvægur sigur í dag því við verðum að vera á toppnum. Það gefur okkur trú og sjálfstraust fyrir næsta leik.

„Þetta var stórkostleg endurkoma hjá okkur. Við vorum of hægir í fyrri hálfleik og vissum að það var nauðsynlegt að keyra upp hraðann. Við vissum líka að um leið og fyrsta markið kæmi ættum við möguleika. Á endanum var þetta þægilegt," sagði Rooney.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×