Mágur Mousavis handtekinn 24. júlí 2009 04:00 Rahim Mashai og Ahmadinejad Mashai hætti snarlega við að verða varaforseti Ahmadinejads. fréttablaðið/ap
Shahpour Kazemi, mágur stjórnarandstöðuleiðtogans Mir Hossein Mousavi, hefur verið handtekinn í Íran. Zahra Rahnavard, sem er eiginkona Mousavis og systir Kazemis, skýrði frá þessu í gær. Hún ráðlagði jafnframt stjórnvöldum að birta engar „nauðugar játningar“ frá honum eða öðrum, sem handteknir hafa verið í tengslum við mótmælin og óróleikann þar undanfarnar vikur. Um fimm hundruð manns hafa verið handtekin eftir kosningarnar umdeildu, sem fóru fram 12. júní. Mousavi og stuðningsmenn hans hafa ekki trú á því að Mahmoud Ahmadinejad forseti hafi borið sigur úr býtum í þeim kosningum. Rahnavard segir bróður sinn, Kazemi, engan áhuga hafa á stjórnmálum og ásakanir um að hann hafi efnt til óeirða og verið í tengslum við útlendinga séu óskiljanlegar. Hin umdeildu kosningaúrslit hafa valdið sjaldséðum klofningi í valdastétt landsins. Æðsti leiðtoginn, Ali Khameini, hefur vísað á bug öllum efasemdum um kosningaúrslitin og lýst stuðningi við Ahmadinejad. Aðrir úr klerkastéttinni, meðal annars Akhbar Hashemi Rafsanjani, fyrrverandi forseti, hafa lýst stuðningi við Mousavi og krefjast þess að vafa um kosningaúrslitin verði eytt.- gb
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira